Lífið gengur bara sinn vanagang hérna í Odense, þ.e.
skóli-borða-læra-æfa-sofa. Það er allt komið á fullt í skólanum. Í
seinustu viku var minn hópur ( ég og 4 aðrar stelpur í bekknum) að
stjórna ældreidræt (sem sagt íþróttatími fyrir gamalt fólk). Það
kom heldur betur á óvart því þetta var rosa skemmtilegt. Á seinustu
önn fór ég nebbla í heimsókn á sjúkraþjálfunarstofu sem var aðeins
fyrir gamalt fólk....mér fannst ekkert svaka gaman þar og langar
ekki að verða sjúkraþjálfari fyrir gamalt fólk...ekki nógu mikið
aksjón í því. En það var allt annað að kenna þessu gamla fólki
íþróttir, gæti alveg hugsað mér að sjá um svoleiðis í framtíðinni

Þau voru öll alveg yndisleg. Fyrir utan hvað þetta var
skemmtilegt þá fannst gamla fólkinu svo gaman hjá okkur og fannst
við standa okkur svo vel að þau vildu bara hafa okkur áfram sem
kennara ( hver hópur fær sko bara að kenna í 1 viku). Maður verður
líka svo glaður og ánægður þegar gengur svona vel....eftir
íþróttatímann fórum við allar skælbrosandi og glaðar heim

Í
næstu viku erum við (sami hópur) svo að fara að kenna 5-6 ára
börnum íþróttir. Hlakka rosa mikið til....verður örugglega
skemmtilegt. Í næstu viku erum við svo líka að fara að byrja á
verkefni þar sem við eigum að fylgjast með barni og skrifa svo
verkefni út frá því sem við tökum eftir, um hreyfingar barnsins. Í
anatómíu erum við svo farin að undirbúa okkur fyrir prófið og erum
tekin upp á töflu í hverjum tíma til að láta okkur æfa okkur fyrir
prófið. Sumar stelpurnar eru að fara yfirum af stressi yfir þessu
öllu saman og gera varla annað en kvarta.....voru ekkert voða
sáttar við mig þegar ég sagði þeim að þetta fylgdi því bara að vera
í skóla

þessir Danir eru soldið mikið fyrir að kvarta
Á föstudaginn er íþróttadagur í skólanum...þá er ég að fara að
keppa í rundbold (sambland af kýló og hafnabolta) með 10 öðrum í
bekknum
Mest notuðu buxurnar mínar þessa dagana eru stuttbuxurnar mínar og
náttbuxurnar (nei, ég er ekki alltaf sofandi, ég fer bara alltaf
annaðhvort í náttbuxur eða stuttbuxur þegar ég kem heim úr
skólanum.....það er SVOOOOO þægilegt)
Undanfarið hef ég verið að spurja sjálfa mig margra “what if”
spurninga.....af hverju gerir maður það??? Maður mun aldrei fá svör
við svoleiðis spurningum...
Erum að læra ýmsa nytsamlega hluti í skólanum....lærðum t. d. um
daginn af hverju maður verður þunnur

Eins og margir vita þá
stafar þynnka af vökvaskorti....en það eru kannski færri sem vita
að vökvaskorturinn veldur því að heilinn
skreppur
saman og það hefur áhrif á taugaþræðina sem liggja
til/frá heilanum
Á föstudaginn er bjórkvöld hjá Íslendingafélaginu og á laugardaginn
ætlar Berglind að halda upp á afmælið sitt. Eftir þessa helgi
verður svo aðeins slakað á í djamminu
Jæja, anatómían bíður spennt eftir mér
Hilla
P.s. Þetta blogg er bara fyrir þig Áslaug....vil ekki bera ábyrgð á
því að þér leiðist