Winners never quit quitters never win
23.10.2006 19:59:14 / hillpill

Bland poka

o Fór í íslenskt lambalæri, íslenskar ora grænar baunir, íslenskan fetaost og danskt meðlæti til Gyðu....mmmmm..... :lol:
o Hef alltaf haldið því fram að ég sé ekki ljóska.....en held ég neyðist bara til þess að draga það til baka 8|
o Tíminn líður svo hratt....það virðast bara vera mánudagar og föstudagar hérna :P
o Skiluðum verkefni um hreyfiþroska barna á föstudaginn.....við Þórdís förum svo á þriðjudaginn í næstu viku í “próf” úr verkefninu
o Haustlitirnir eru farnir að láta sjá sig hérna og farið að kólna
o Púlsúrið mitt gaf upp öndina á miðri æfingu um daginn
o Fór í Íslendinga- stelpupartý.....forðaði mér þegar sing star var tekið fram :lol:
o Hrökkbrauð í þúsund molum er óþolandi...
o Abductor/adductor æfingin (svona kellingaæfing....sem margar konur gera í tugatali til þess að fá flottari mjaðmir...þar sem maður situr í tækinu og ýtir löppunum ýmist saman eða í sundur) virkar ekki (vissi það nú alveg)....en var að fá útskýringu á því af hverju.....þar sem maður getur ekki brennt fitu staðbundið verður þessi æfing bara til þess að maður fær vöðva utan á fituna á mjöðmunum => maður fær bara breiðari mjaðmir og æfingin ber þar af leiðandi ekki þann árangur sem ég býst við að margar konur vilji að hún geri.....sem sagt sleppiði þessari æfingu:!: 8| :!:
o Átti að vera bekkjarpartý á föstudaginn....sem varð eila bara að átkvöldi....allir svo búnir á því....
o Þvagblaðran mín virðist hafa gefið upp störf sem geymslustaður eftir hádegi....fer milljón sinnum á klósettið eftir hádegi á hverjum degi..... :$
o Er að skrifa grein sem mun birtast á www. fysstud.dk
o Við Berglind skelltum okkur á intervalæfingu á frjálsíþróttavellinum hérna á laugardaginn. Þar voru nokkrir á æfingu fyrir og þjálfaranum fannst við taka okkur svo vel út á hlaupabrautinni að hann vildi æstur fá okkur á æfingu :P svo hver veit...kannski maður skelli sér á sína fyrstu frjálsíþróttaæfingu soon :o
o 3 æfingar í röð án þess að finna til nokkurs staðar....það hefur ekki gerst síðan ég var 14 ára (9. bekk) :D
o Roooosalegar harðsperrur síðan á laugardaginn....það er greinilegt að hlaup tekur á fleiri vöðvum en í fótunum.....hliðarmagavöðvarnir voru nánast ónýtir í gær....en þetta er allt að skána :P
o Keypti mér beinagrind á netinu um daginn
o Mig er búið að dreyma 5 sinnum á seinustu 3 vikum að ég sé ólétt :$
o Við Berglind fórum svo á World Trade Center á laugardaginn.....mögnuð mynd.....sú besta sem ég hef farið á í laaaaangan tíma....mæli með henni við alla
o Búin að panta flug heim í frí.....kem heim 27. janúar og verð í 8 daga
o Fór til læknis um daginn af því að ég er alltaf með svo mikið slím í hálsinum.....gat ekki andað eðlilega út af því....en þessir læknar vita ekkert frekar en fyrri daginn svo Hjördís tók bar að sér að lækna mig.....ég geri sem sagt lungnaberkjuæfingar tvisvar á dag....blæs í eitthvað rör/pípu sem veitir smá mótstöðu og hósta svo upp slími (já, mér líður eins og ég sé áttræð)....þvílíkur munur....get andað eðlilega :)
o    Mig langar i klippingu
o Þórey og "Litla" líst vel á ykkur....mars hljómar vel....þá er bara að fá piltana út á sama tíma svo við getum haldið árshátíð.....sem karlmennirnir áttu víst að skipuleggja þetta árið ;)
o Vaknaði rétt fyrir 6 í morgun til að lesa glósurnar mínar yfir áður en ég færi í skólann.....var handviss um að nú væri búið að breyta tímanum í vetrartíma því það var svo dimmt úti og allt var hljótt í húsinu þegar ég lagði af stað í skólann....en mér til mikillar ánægju voru bekkjarfélagar mínir að tínast í skólann þegar ég kom þangað...tíminn breytist á sunnudaginn
o Tók greindarpróf sem byggir á 7 tegundum greindar (úff!!!ryðguð í íslensku...sem sagt 7 intelligencer) ég á svo að mæta með það í skólann og það verður gert skema yfir bekkinn....og ég var með 0 í musikalsk intelligence...kemur það einhverjum á óvart? :$
o    Stefán Orri....myndir!! :P
o Magnað að það fáist íslenskt skyr hérna í sveitinni.....eeeeelska boost....mmmm...
o Koma svo fólk....fleiri að kjósa í könnuninni.....þið vitið nú hvar tígrisdýr búa.....
o Svo önnur dýraspurning að lokum.....vitiði hvað karlkyns, fullvaxinn selur (pabbaselur) heitir?

Nóg í bili

Hilla







» 8 hafa sagt sína skoðun

03.10.2006 16:21:50 / hillpill

34 klukkustunda sólarhringur.....

....já, takk....væri alveg til í að sólarhringurinn væri soldið lengri.....þá gæti ég gert allt sem mig langar að gera.....gæti æft tvisvar á dag, lært aðeins meira og sofið smá meir :D

Við unnum bara rundboldmótið á föstudaginn :lol: Það mættu svo fáir í skólann á föstudaginn að við náðum ekki í lið svo við vorum bara með sameiginlegt lið með hinum bekknum.  Unnum alla leikina okkar og unnum úrslitaleikinn 9-1 :P Fengum svo kampavín (sem Magnus sprautaði yfir okkur), bjór, 10 poka af haribo nammi og svo að sjálfsögðu bikar í verðlaun :D

Er búin að fá 2 nýja kennara frá því á seinustu önn.  Fengum nýja kennara í fysioterapiteori og -metode og í psykologi.  Kennarinn í fysioterapiteori og metode er rúmlega fertug kona, algjör gella og lítur út fyrir að vera um þrítugt.  Hún mætir alltaf rosa vel tilhöfð í skólann (hugtak sem ég kannast ekki við) :haha: Hún er oftats í pilsi og hlírabola og er soldið mikið fyrir að lyfta upp höndunum.....og þá kemur líka í ljós þessu svaka brúskur .....hún er loðnari en górilla undir höndunum....JAKK!!!! 8|  Psykologikennarinn minn er skemmtilegur kall.  Hann er frá Californiu og talar þar af leiðandi dönsku með kalifornískum hreim.....sem er mjööööög fyndið :P  Hann minnir soldið á OFURjákvæða kærastann hennar Pheobe af því að honum finnst ALLT fantastisk.....honum finnst frábært að við höfum keypt bókina sem við eigum að nota í psykologi og honum fannst nú enn frábærara að flestir í bekknum hefðu lagt á sig að læra heima fyrir tímann.....:P

Það hefur eitthvað kvikindi verið að bíta mig í gærkvöldi og í nótt....er öll út í stórum, rauðum upphleyptum bitum....á höndunum, fótunum og bakinu....

Ég er orðin ástfangin....af róðravélinni í litlu ræktinni okkar hérna......svoooo gaman í henni ;)

Loksins búin að uppgötva fyrirbærið tónlist.....þegar heilinn á mér er við það að bræða úr sér eftir mikinn anatómílestur tek ég mér 15 mín pásu til að hlusta á tónlist og þá er ég klar igen:P

Bíð spennt eftir næstu helgi......ætla mér að gera ALLS EKKI NEITT....bara hanga....er byrjuð að downloada desperate housewives til að horfa á um helgina :D

Farin að gera eitthvað af viti

HG

» 9 hafa sagt sína skoðun