Winners never quit quitters never win
04.10.2008 15:49:12 / hillpill

Pælingar


Long time...og ekkert blogg....það gengur ekki lengur... 

Hérna kom allavega smá pælingar...

Einu sinni var ég fegin að hafa valið mér "afmarkað nám" (veit ekki alveg hvað ég á að kalla þetta)....sem sagt nám sem býður ekki upp á ALLT OF mikla möguleika í starfsvali...ég hálfvorkenndi fólki sem valdi sér nám þar sem það gat farið að vinna við nánast hvað sem er að námi loknu.....en núna langar mig að gera SVOOOO margt þegar ég er búin að útskrifast....mig langar að: />

  • Vinna á stofu á Íslandi />
  • Vinna á La Santa Sport />
  • Vinna einhvers staðar annars staðar í útlöndum (Spáni, Suður- Ameríku, Noregi...) />
  • Fara á alls kyns námskeið....nálastungur, kinesio tape, pilates, íþróttameiðsl, sérhæfa mig (ekki alveg viss í hverju ennþá)... />
  • Vera með alls kyns hópleikfimi fyrir allskonar hópa...konur (á mömmu aldri), karla (á pabba aldri), bakleikfimi, boltaleikfimi, pilates, stöðvaþjálfun, hlaupahóp o.fl. />
  • Vera sjúkraþjálfari hjá einhverju handboltaliði />

Jahá......

Hillpill
      
       

» 2 hafa sagt sína skoðun

22.08.2008 19:44:20 / hillpill

Ísland er stórasta land í heimi!!!

Ég fékk gæsahúð og táraðist í lok leiksins 8)

Áfram Ísland!!!

P.s Setti Íslandsmet í prins póló áti í vikunni :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.08.2008 23:17:09 / hillpill

Kjánabros

Var að koma af Mamma mia með Evunni minni.....sat með frosið kjánabros alla myndina...rosa gaman og mann langaði bara að tjútta með öllum skemmtilegu lögunum :lol: Og eitt enn....þó Pierce Brosnan sé nógu gamall til að vera pabbi minn.....var han meeeega HOT í myndinni ;)

Hillpill


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.08.2008 23:28:00 / hillpill

Versló

Akureyrin var niiiice að vanda og innihélt sitt lítið af hverju:

Sumarbústaðarafslappelsi bjór- og rauðvínssötrunpottahangs – bæjarrölt – ísbíltúr (ekki þó Brynju...það var lokað)partý og djammfjölskyldugrillveislusmá hestbak – Greifapizzu og Búkollufjallgönguspil og spjall...

Hilla
P.s. Eru líka BARA mánudagar og föstudagar í ykkar vikum???



» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 19:06:02 / hillpill

Súmó

Fékk lánaða tölvusnúru fyrir myndavélina mína hjá Svövu systur svo mér tókst, eftir margar tilraunir, að dúndra nokkrum albúmum inn á facebook....og fleiri eru væntanleg :þ

Um miðjan júní gæsuðum við stelpurnar í bekknum Söndru (færeysk stelpa sem er með mér í bekk). Þar sem það er ekki hægt að setja myndbönd inn á facebook (eða ég kann það allavega ekki...) ákvað ég að setja inn myndband úr gæsuninni hérna. Skelltum okkur sem sagt í súmóglímu með Söndru sem var rosa fjör :haha: Það er algjörlega þess virði að horfa á myndbandið....Enjoy :lol:


Þórdís og Sandra í súmó:


 

Hilsen Hillpill

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2008 23:30:25 / hillpill

Silly

Eitt af markmiðum sumarsins er að vera DUGLEG að taka MYNDIR þar sem ég á það til að gleyma því að ég á ROSA FÍNA myndavél....EEEEN ég gleymdi TÖLVUSNÚRUNNI fyrir myndavélina mína í Odense. Gott Hildur (eins og mamma hennar Önnu Úrsúlu hélt að ég héti) :haha:
Eeeen ég hlýt að geta fengið svona snúru lánaða einhvers staðar...vona það allavega :þ

Farin í háttinn

Hilla


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.07.2008 15:53:10 / hillpill

Ahhhh....

r...Hversu ljúft er að vera í sumarfríi....

Skellti mér út að hlaupa í morgun, svo í göngutúr niður í bæ með mömmu og Fjólu í góða veðrinu upp úr hádegi, settumst svo á kaffihús og Eva kom og borðaði með okkur. Í kvöld er svo planið að fara í hjólatúr og sund með Evu og enda í ís á Hagamelnum.

Fyrir utan þetta er ég búin að hafa það mega næs seinustu daga í fríi í Odense og Köben með Ragga og foreldrum hans.....bæjarrölt, dýragarðsheimsókn, bjór- og rauðvínssötrun, búðaráp, grill og góður matur, spil og almennt afslappelsi í góðum hópi....gerist varla betra :þ


Hillpill ennþá í sumarfríi :d


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.06.2008 15:33:37 / hillpill

Sumar- og haustplön so far...

Helgin 4.-6. júlí => Afslappelsi
Helgin 11.-13. júlí => Fjölskylduútilega
Helgin 18.-20. júlí => Óvissuferð í nágrenni Akureyrar
Helgin 25.-27. júlí => Árleg útilega Selsins og Kópsins þar sem 84 árgangurinn sér um skipulagningu að þessu sinni
Helgin 1.-4. ágúst => Verslunarmannahelgin => Árleg veiðiferð á Aravatn
Helgin 8.-10. ágúst => Ættarmót í Skagafirði og Húsavíkurþríþraut
Helgin 15.-17. ágúst => Hjólaútilega til Þingvalla....allir velkomnir með
Helgin 22. -24. ágúst => Reykjavíkurmaraþon....samt bara 10 km
Helgin 29.-31. ágúst => Stuðmannaball og beint í flug til DK

  • Adventure race 6. sept með Þóreyju og Elínu
  • Haustferð til Parísar með Ragga í lok sept. / byrjun okt....fer eftir því hvernig stundatöflurnar okkar líta út
  • Ragnó uppáhaldsfrænka mín og Bjössi bróðir koma í heimsókn í lok okt.
Jeijj!!! Svooo margt til að hlakka til :d

Hillpill í sumarfríi :þ



» 2 hafa sagt sína skoðun

16.06.2008 21:46:07 / hillpill

Ísbjörn vikunnar...

...er ÍSBJÖRNINN í sveitinni MINNI...sem sagt ísbjörninn sem er í æðarvarpinu á Hrauni á Skaga þar sem ég eyddi öllum sumarfríum þegar ég var lítil :lol: Litla frænka mín (sem er ekki svo lítil lengur) sem ég passaði líka í sveitinni í den var sú fyrsta til að sjá ísbjörninn 8|

Hillpill

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.06.2008 19:00:42 / hillpill

Niðurtalning

Núna eru:
•    7 dagar í 1. próf
•    11 dagar í flutninga
•    12 + dagar í að ég hitti Döbbu
•    15 dagar í ritgerðarskil
•    16 dagar í Fame – söngleikinn í den Fynske Landsby
•    18 dagar í gæsun á Söndru
•    22 dagar í próflok, smá frí og afslöppun
•    30 dagar í heimkomu
•    34 dagar í 1. vinnudag

HG



» 1 hafa sagt sína skoðun

31.05.2008 23:09:17 / hillpill

Ég myndi vinna alla kallana í Tour de France....

...ef keppnin væri að hjóla seinasta spottann heim til mín í MYRKRI :lol: Það eru nebbla bara ljósastaurar hinum megin við götuna og í mesta lagi kveikt á þriðja hverjum 8| Svo eru tré út um allt sem blokka fyrir þetta litla ljós sem kemur frá þessum örfáu ljósastaurum. Í öllum þessum trjám væri svo auðvelt fyrir einhverja perra að fela sig og stökkva svo út úr þeim án þess að nokkur yrði var við :o
Þess vegna hjóla ég alltaf eins hratt og ég get þennan seinasta spotta og kem því sveitt heim og með púlsinn í a.m.k. 220 slögum/ mín. :lol:
Ég ÞOLI EKKI að hjóla þennan seinasta spotta ALEIN heim til mín SEINT Á KVÖLDIN.

Hilla myrkfælna



» 0 hafa sagt sína skoðun

18.05.2008 15:21:01 / hillpill

TO DO- listakonan

Ég er HÁÐ TO DO listum.....ég skrifa ALLT og þá meina ég ALLT sem ég þarf að gera á TO DO lista, þó það sé bara e-r smáhlutur eins og t.d. að hringja eitt símtal eða senda eitt mail. Málið er nebbla það að ég er FRESTARI....allavega í sambandi við það sem mér finnst leiðinlegt að gera og þá bjargar TO DO listinn minn mér.....ég skrifa nebbla líka niður á TO DO listann hvenær ég ætla að framkvæma hlutina.....og þá er þetta eiginlega orðin keppni við sjálfa mig.....hvort ég nái/láti verða af því að framkvæma það sem er á TO DO lista dagsins.....Ég EEEELSKA “afreksdaga” sem sagt daga þar sem ég næ að stroka margt út af TO DO listanum....Já, ég veit SOOOOLDIÐ crazy....but it works for me....

 Hilsen />

TO DO-listakonan


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.05.2008 13:39:52 / hillpill

Flutningar igen o.fl.

Vorum að fá tilboð um nýja og betri kollegí-íbúð  á öðru kollegíi og getum flutt inn eftir rúman mánuð. Þrátt fyrir að tímasteningin á flutningum sé ekki sú besta....ég í miðjum próflestri en Raggi búinn að verja ritgerðina sína þá er allt betra í hinni íbúðinni:

•    Kollegíið er nær miðbænum
•    Íbúðin er 10 fermetrum stærri og það er meira skápapláss
•    Við fáum eigin afgirtan garð þar sem hægt verður að leika sér, fara í sólbað og grilla
•    Vatn, hiti og rafmagn er innifalið í leigunni => við getum farið í laaaanga sturtu og Raggi getur tekið sér góóóðan tíma í að vaska upp ;)
•    Eldavél og ofn (erum bara með combiovn og 2 hellur núna)
•    Stærri ísskápur og frystir
•    Og leigan er sú sama

Svo þetta er eiginlega bara svona win-win situation.....svo við ætlum að taka íbúðinni :d

Að öðru...
Smakkaði sushi í fyrsta skipti á fimmtudaginn. Fór út að borða með nokkrum í bekknum og lét bara panta fyrir mig þar sem ég vissi ekkert hvað væri hvað og hvað þá hvað smakkaðist vel (hvað eru mörg hvað í því?) :lol: Fannst þetta bara ágætt en get nú ekki borðað mikið af þessu og hvað þá borðað mig sadda af þessu 8| Þar sem enginn var saddur eftir sushiið skelltum við okkur bara í íslabbitúr og löbbuðum við í 3 ísbúðum áður en við loksins fengum okkur ís 8)

Sumarið er sko heldur betur mætt til Odense. Frekar lítið að gera hjá mér í skólanum ákkúrat í augnablikinu svo ég hef nægan tíma til að vera úti að sleikja sólina, hlaupa og grilla :þ Skeltum okkur nokkrar stelpur á ströndina í Kerteminde í gær. Hjóluðum 25 km á ströndina í fullkomnu hjólaveðri....rúmlega 20 gráðu hiti, varla ský á himni og smá gola sem kældi mann niður 8) Elín sá um mat yfir daginn....heimabakaðar speltbollur og fullt af áleggi, súkkulaðiskonsur og brownies, ávextir, kex og nammi...mmm... :) Lékum okkur svo smá í blaki, risa-mikado og spiluðum rommí en mestur tími fór í að spjalla, borða og liggja í leti :þ Um kvöldið voru svo grillaðar pulsur og var ætlunin að borða ís í eftirrétt...en allir voru svo saddir að ísinn komst ekki fyrir 8|
Ég var ekki alveg nógu duglega að bera á mig sólarvörn svo ég er frekar mikið brennd.....svo ég kemst ekkert út í sólina í dag...

Hilsen úr blíðunni og grilling season

Hillpill



» 3 hafa sagt sína skoðun

04.05.2008 16:17:12 / hillpill

VÁÁÁÁÁ!!!!

MeEeEgA sKeMmTiLeGt BrÚðKaUp Í gÆr HjÁ sTóRu SyStUr Og HaUkI.
tIl HaMiNgJu IgEn.


Allt tókst bara eins vel og hægt var....þrátt fyrir að fyrir utan að flestir heilsuðu mér ekki vegna þess að þeir þekktu mig ekki (og ég var spurð hvort ég hefði verið í lýtaaðgerð 8| ) tókst mér að mæta í kjólnum öfugum í kirkjuna (sko ekki inside out heldur snéri það sem átti að snúa fram aftur) :haha: En ég fattaði það áður en ég labbaði inn....HJÚKK!! ;) Fyrir brúðkaupið var ég svo stressuð (veit ekki yfir hverju) að það hefði mátt halda að ég væri að fara að gifta mig en ekki Svava 8|....hún hélt coolinu og var eins og hún hefði ekki gert annað...

Bjössi bróðir og Halldóra mágkona stóðu sig svo eins og hetjur sem veislustjórar:
•    Halldóra sýndi töfrabrögð :þ
•    Þau héldu saman ræðu um Svövu og Hauk
•    Þau létu Svövu spila “hjólin á strætó snúast hring, hring, hring” og Haukur söng með :haha:
•    Á borðunum voru miðar með fyrri pörtum af vísum sem fólk átti svo að botna...kom mjög skemmtilega út....ljóðunum verður svo safnað saman í minningabók handa brúðhjónunum :d
•    Útvaldir fengu svo ákveðin hlutverk á borðunum sínum, t.d. að skála eins oft og þeir gátu, tala um hvað Mercedes club væri góð hljómsveit, spyrja billjón sinnum hvort brúðurin væri í alvörunni ólétt o.fl.....en Kiddi (Evupabbi) stóð sig samt best.....hann átti alltaf að vera að standa upp og skála fyrir föður brúðarinnar :lol:
•    Svo voru að sjálfsögðu fullt af skemmtilegum ræðum og skemmtiatriðum frá gestunum :þ

Ég komst lifandi frá ræðunni minni, datt ekkert á leiðinni upp á svið þrátt fyrir að hafa pínt mig til að vera í háum hælum í annað skipti á ævinni (sumir kalla þetta kannski ekki háa hæla...en fyrir mér eru allir skór, sem eru með hærri hæl en hlaupaskórnir mínir, háhælaðir) :lol: og ég talaði ekki á “fast forward” þrátt fyrir að hjartað hafi verið í a.m.k.160 slög/mín. :$

Svo var bara tjúttað fram eftir kvöldi :d

Að lokum kemur svo mynd af fallegu brúðhjónunum



Hilla





» 2 hafa sagt sína skoðun

02.05.2008 13:45:38 / hillpill

BREYTINGAR



Jábbs....minns bara orðin ljóshærð og með topp í fyrsta skipti á ævinni :d

Fyrir utan þessar útlitsbreytingar er ég líka flutt í Odense :) Bý núna með Ragga í lítilli og kósý íbúð á stúdentagörðum :þ

Annars er ég bara í skottúr á Íslandi til þess að vera viðstödd brúðkaup Svövu systur og Hauks sem er á morgun....Jiiiiii!!! hvað ég hlakka til :d

Later

Hillpill


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7